Alvarlegur skortur á lækningabúnaði hefur hamlað viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki við að hlúa að þeim sem slösuðust í jarðskjálftanum sem reið yfir Mjanmar í gærmorgun, samkvæmt mannúðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna. AFP-fréttastofan greinir frá.
Staðfest er að yfir 1.600 hafa fundist látnir eftir skjálftann, sem var um 7,7 að stærð, og þúsundir eru slasaðir. Þá eru hundruð manna taldir fastir undir rústum bygginga og mikil þörf er fyrir mannúðaraðstoð.
Meðal þess sem vantar til að sinna slösuðum eru búnaður til að veita fyrstu hjálp og stöðva blæðingar, blóðbirgðir, deyfi- og svæfingarlyf, sem og önnur lyf. Einnig vantar tjöld fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Skjálftinn hafi einnig áhrif í nágrannalöndum, en staðfest er að 11 manns hafa látist í Bangkok og að minnsta kost 50 verkamanna er saknað eftir að háhýsi á byggingarstigi hrundi vegna skjálftans í gær.