Ítrekar áhuga sinn á þriðja kjörtímabilinu

Trump segir að honum hafi verið kynnt áform um hvernig …
Trump segir að honum hafi verið kynnt áform um hvernig hann geti sóst eftir endurkjöri. AFP/Brendan Smialowski

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ítrekaði þá hugmynd sína að hann myndi hugsanlega sækjast eftir þriðja kjörtímabilinu sem forseti í samtali við NBC-fréttastofuna fyrr í dag.

Það gengur hins vegar gegn ákvæði í stjórnarskrár Bandaríkjanna þar sem kveðið er á um að forseti geti einungis setið tvö kjörtímabil, nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

„Ég er ekki að grínast,“ sagði forsetinn þegar hann var beðinn um að skýra betur hvað hann ætti við.

„Það eru leiðir færar til að gera það,“ bætti hann við.

Kynnt áform um hvernig hann nái endurkjöri

Trump, sem er 78 ára, hefur áður gefið í skyn að hann gæti setið lengur en tvö kjörtímabil sem forseti, en í dag var hann afdráttarlausari en áður með þá hugmynd sína.

„Mjög margir vilja að ég geri það,“ sagði Trump í samtali við NBC. „En ég segi alltaf að við eigum langan veg fyrir höndum. Stutt er liðið af kjörtímabilinu.“

Til að geta setið lengur en tvö kjörtímabil þyrfti Trump að hafa tvo þriðju meirihluta þingmanna í bæði öldungadeildinni og fulltrúadeild þingsins, sem Repúblikanaflokkur Trump hefur ekki.

Trump sagði að það væri of snemmt að hugsa út í þetta, en sagði engu að síður að honum hefðu verið kynnt áform um hvernig hann gæti sóst eftir endurkjöri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka