Málið vindur upp á sig: Nítján handtökur

Í Kongsvinger hófst í haust fíkniefnamál sem var kannski í …
Í Kongsvinger hófst í haust fíkniefnamál sem var kannski í stærra lagi miðað við það sveitarfélag. Fáa grunaði hins vegar hver staðan yrði eftir að öll kurl komu til grafar. Ljósmyndari/Wikipedia.org/Tor Egil Riegels Strand

Fíkniefnamál í Kongsvinger í Noregi í fyrrahaust, sem skilaði af sér fimm handtökum á þeim tíma, hefur heldur betur undið upp á sig við rannsókn þá er síðan hefur verið í fullum gangi og eru handtökurnar nú orðnar 19, þar af ein á Spáni þar sem sænskur ríkisborgari var handtekinn með aðkomu norskrar lögreglu.

Að sögn norsku lögreglunnar fletti rannsóknin á norska anga málsins ofan af alþjóðlegri samvinnu sem gerði það að verkum að tengja mátti þann félagsskap, sem stóð að málinu í Noregi, við mun meira magn fíkniefna en í öndverðu hafði blasað við.

Að sögn Christine Lundstein, ákæruvaldsfulltrúa lögreglunnar í Innlandet-fylki, sá lögreglan sér leik á borði, er rannsókninni vatt fram, og náði að tengja starfsemina við mun meira efnamagn en áður þótti líklegt að norski hópurinn hefði haft á að skipa.

Undir grun um stórfelld fíkniefnabrot

Svíinn, sem handtekinn var á Spáni, er talinn einn höfuðpaura starfseminnar og var hann nýlega framseldur til Noregs þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Í janúar og febrúar handtók lögregla fjórtán manns í Innlandet-fylki norðan Óslóar og þrjá til innan suðausturumdæmis lögreglunnar.

Hinir handteknu liggja undir grun um stórfelld fíkniefnabrot eða hlutdeild í slíkum brotum auk þess sem nokkrir þeirra eru grunaðir um fíkniefnamisferli innan vébanda skipulagðrar glæpastarfsemi. Sjö sitja enn í gæsluvarðhaldi.

Lögregluumdæmi Innlandet hefur notið samstarfs við norsku rannsóknarlögregluna Kripos, efnahagsbrotalögregluna Økokrim, suðvesturumdæmið og suðausturumdæmið og eru hinir handteknu búsettir víða um Austur-Noreg og á aldursskeiði 20 til 50 ára að sögn lögreglu.

VG
NRK

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert