Segir Bandaríkin skuldbundin NATO

00:00
00:00

Marco Ru­bio, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, full­yrti við ríki Atlants­hafs­banda­lags­ins að rík­is­stjórn Don­alds Trumps væri skuld­bund­in banda­lag­inu. Aft­ur á móti sagði hann NATO-rík­in verða að spýta í lóf­ana þegar kæmi að út­gjöld­um til varn­ar­mála.

Um­mæli Trumps, þar sem hann hef­ur dregið í efa að Banda­rík­in muni stíga inn og verja lönd sem verja ekki nægu fjár­magni til varn­ar­mála, hafa skapað mikla óvissu meðal evr­ópskra banda­manna Banda­ríkj­anna. Þá hafa viðræður Banda­ríkja­for­set­ans og Rúss­lands­for­set­ans, og sam­starf þeirra, einnig vakið spurn­ing­ar um stefnu Trumps í ut­an­rík­is­mál­um.

Trump styður NATO

„Móður­sýk­in og upp­hlaupið sem ég hef orðið vitni að í heim­spress­unni og banda­rísk­um fjöl­miðlum um NATO á ekki rétt á sér,“ sagði Ru­bio á fyrsta fundi sín­um með full­trú­um NATO-ríkj­anna í Brus­sel.

„Trump for­seti hef­ur gert það ljóst að hann styður NATO. Við ætl­um áfram að vera í NATO,“ hélt hann áfram.

Trump hef­ur talað fyr­ir því að NATO-ríki verji fimm pró­sent­um af vergri þjóðarfram­leiðslu í varn­ar­mál. Lág­marks­viðmiðið sem Atlants­hafs­banda­lags­ríki horfa til núna eru tvö pró­sent.

Ísland er eitt níu ríkja sem náðu ekki þessu marki á síðasta ári, sam­kvæmt út­tekt BBC sem birt var í fe­brú­ar. Ísland ver 0,14% til varn­ar­mála.

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert