Níu látnir og tugir særðir eftir drónaárás á rútu

Drónaárás Rússa á rútubifreið varð níu að bana.
Drónaárás Rússa á rútubifreið varð níu að bana. Ljósmynd/X

Níu eru látn­ir og tug­ir eru særðir eft­ir drónárás Rússa á rútu­bif­reið í borg­inni Mar­hanets í suðaust­ur­hluta Úkraínu í dag.

Úkraínsk yf­ir­völd segja að árás Rússa hafi drepið níu manns og 30 eru særðir en Rúss­ar gerðu einnig dróna­árás­ir á höfuðborg­ina Kænug­arð og borg­irn­ar Kharkiv, Polta­va og Odesa. 

Árás­ir Rússa koma á sama tíma og stjórn­ar­er­ind­rek­ar frá Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Banda­ríkj­un­um og Úkraínu búa sig und­ir viðræður í Lund­ún­um sem miða að því að tryggja vopna­hlé í átök­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert