Bresk yfirvöld fordæma eldflaugaárás Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt sem drap níu manns og særði um 80.
„Á meðan úkraínskir ráðherrar voru í Lundúnum að vinna að friði voru Rússar með Vladímír Pútín forseta í broddi fylkingar að ráðast á úkraínsku þjóðina. Þetta eru ekki aðgerðir friðarmanns,“ segir David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands, í færslu á X.
Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að árásin sendi skýr skilaboð frá Kreml.
„Rússland hefur engan raunverulegan áhuga á friði. Danmörk stendur ásamt Úkraínu saman gegn þessari grimmd,“ skrifar hún á X.
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, segir að árás Rússa á Kænugarð sýni að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi ekki áhuga á að stöðva stríðið.