Níu látnir eftir stórfellda eldflaugarárás á Kænugarð

Rússar gerðu stórfellda loftárásir á Kænugarð í nótt.
Rússar gerðu stórfellda loftárásir á Kænugarð í nótt. AFP

Að minnsta kosti níu er látn­ir og tug­ir manna eru særðir eft­ir stór­fellda eld­flauga­árás á Kænug­arð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.

Þetta er ein mann­skæðasta árás Rússa á Kænug­arð frá upp­hafi stríðsins sem hófst fyr­ir rúm­um þrem­ur árum. Staðfest dauðsföll eru níu og þá eru á sjö­unda tug særðir, þar á meðal sex börn.

Andrii Sybiha, ut­an­rík­is­ráðherra Úkraínu, seg­ir á sam­fé­lags­miðlum að árás­in sýni að Rúss­ar vilji ekki stöðva stríðið.

Björgunaraðilar að störfum í Kænugarði.
Björg­un­araðilar að störf­um í Kænug­arði. AFP

„Vla­dímír Pútín Rúss­lands­for­seti sýn­ir með gjörðum sín­um, ekki orðum, að hann virði enga friðarviðleitni og vilji halda stríðinu áfram,“ seg­ir hann.

Þá gagn­rýn­ir ut­an­rík­is­ráðherr­ann til­lög­ur Pútíns um vopna­hlé í skipt­um fyr­ir landsvæði á Krímskaga.

Pútín á enn eft­ir að svara boði Volodimírs Selenskís Úkraínu­for­seta  um að stöðva al­gjör­lega loft­árás­ir á borg­ara­leg skot­mörk og hafnaði í síðasta mánuði kröfu Banda­ríkja­manna og Úkraínu­manna um fullt og skil­yrðis­laust vopna­hlé.

„Pútín sýn­ir aðeins löng­un til að drepa,“ seg­ir Andrii Jer­mark helsti aðstoðarmaður Selenskís.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert