Fólk sagt látið eftir skotárás í Uppsölum

Skotárásin er til rannsóknar. Engin andlát hafa verið staðfest.
Skotárásin er til rannsóknar. Engin andlát hafa verið staðfest. Skjáskot af SVT

Stór lög­regluaðgerð er nú í gangi nærri Vaksala-torgi í miðborg Upp­sala eft­ir að til­kynn­ing­ar bár­ust um skot­hvelli í hverf­inu. Þetta kem­ur fram á SVT. Óstaðfest­ar fregn­ir herma að nokkr­ir hafi látið lífið af völd­um skotsára.

Ger­and­inn er sagður hafa flúið af vett­vangi á raf­magns­hlaupa­hjóli.

Lög­regl­an hef­ur lokað stóru svæði í miðborg­inni. Fjöldi vitna hef­ur lýst há­vær­um skot­hvell­um að sögn upp­lýs­inga­full­trúa lög­regl­unn­ar.

Vitni á vett­vangi lýsa at­b­urðunum sem skelfi­leg­um.

„Ég heyrði fimm skot. Síðan sá ég fólk hlaupa í all­ar átt­ir og fela sig,“ seg­ir nafn­laust vitni í sam­tali við SVT.

Lög­regla vinn­ur nú að því að tryggja ör­yggi á svæðinu. Ekki hef­ur verið gefið út hversu marg­ir eru látn­ir eða særðir.

Skotárás­in við hár­greiðslu­stofu 

Á vef BBC er seg­ir að skotárás­in hafi verið við hár­greiðslu­stofu og að tals­verður fjöldi hafi verið á svæðinu í til­efni af vor­hátíð. 

Frétt­in hef­ur verið upp­færð 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert