Segir innrás Indverja yfirvofandi

Indverskir hermenn gæta hér öryggis í Srinagar, helstu borg Kasmír-héraðs, …
Indverskir hermenn gæta hér öryggis í Srinagar, helstu borg Kasmír-héraðs, en mikil spenna ríkir nú í héraðinu. AFP/Tauseef Mustafa

Varn­ar­málaráðherra Pak­ist­ans, Khawaja Muhammad Asif, sagði í fyrra­kvöld að inn­rás ind­verska hers­ins í Pak­ist­an væri nú „yf­ir­vof­andi“, en spenna hef­ur auk­ist mjög á milli ríkj­anna tveggja eft­ir hryðju­verkið í Kasmír-héraði í síðustu viku, þar sem 26 ferðamenn voru drepn­ir af hryðju­verka­mönn­um.

Ind­versk stjórn­völd hafa sakað Pak­ist­ana um að hafa staðið að baki ódæðinu, en stjórn­völd þar hafa neitað öll­um ásök­un­um. Rík­in tvö gera bæði til­kall til Kasmír-héraðs og hafa háð stríð í tvígang um yf­ir­ráð í héraðinu.

Asif sagði í viðtali við frétta­stofu Reu­ters í fyrra­kvöld að her­inn hefði sent liðsstyrk til landa­mær­anna, þar sem inn­rás Ind­verja væri nú yf­ir­vof­andi. Þá hefði þurft að taka nokkr­ar „strategísk­ar“ ákv­arðanir vegna spennu­ástands­ins. 

Ind­land og Pak­ist­an búa bæði yfir kjarn­orku­vopn­um, en Asif sagði að Pak­ist­an­ar myndu ein­ung­is beita þeim ef bein ógn við til­veru rík­is­ins kæmi upp. Þá hefðu Pak­ist­an­ar leitað til ým­issa banda­manna sinna og hvatt þá til þess að lægja öld­urn­ar. 

Ind­versk stjórn­völd brugðust ekki við yf­ir­lýs­ing­um Asifs í gær, en for­sæt­is­ráðherra Ind­lands, Nar­endra Modi, gaf fyrr í dag ind­verska hern­um „frelsi til aðgerða“ til þess að bregðast við hryðju­verk­inu í síðustu viku. 

Fel­ur það í sér að yf­ir­stjórn hers­ins fær að ákveða bæði hvenær og hvernig svar Ind­verja við árás­inni verður sem og hvaða skot­mörk verði fyr­ir val­inu. Var ákvörðunin tek­in á fundi Mod­is með helstu yf­ir­mönn­um hers­ins. 

Guter­res ræðir við leiðtog­ana

Ant­onio Guter­res, fram­kvæmda­stjóri Sam­einuðu þjóðanna, hringdi í gær í bæði Modi og Shehbaz Sharif, for­sæt­is­ráðherra Pak­ist­ans, og lýsti yfir áhyggj­um sín­um vegna spennu­ástands­ins í sam­skipt­um ríkj­anna tveggja.

Sagði Guter­res nauðsyn­legt að forðast átök sem gætu haft hörmu­leg­ar af­leiðing­ar í för með sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert