Spánverjar útiloka netárás á raforkukerfið

00:00
00:00

For­svars­menn spænska raf­orku­kerf­is­ins úti­loka að netárás hafi verið or­sök víðtæks raf­magns­leys­is sem olli meiri­hátt­ar trufl­un­um fyr­ir millj­ón­ir manna á Íberíu­skag­an­um í gær.

Spænsk yf­ir­völd reyna enn að kom­ast til botns í mál­inu. Pedro Sanchez, for­sæt­is­ráðherra Spán­ar, hef­ur biðlað til al­menn­ings að forðast að dreifa röng­um og vill­andi upp­lýs­ing­um um málið.

Fólk lenti í alls konar vandræðum í gær á Spáni …
Fólk lenti í alls kon­ar vand­ræðum í gær á Spáni og í Portúgal eft­ir að raf­magn­inu sló út. Hér má sjá ferðalanga sem voru strandaglóp­ar á lest­ar­stöð í Sevilla á Spáni. AFP

Edu­ar­do Prieto, sem er fram­kvæmda­stjóri Red Electrica sem sér um flutn­ings­kerfi raf­magns í land­inu, seg­ir að sam­kvæmt þeirra grein­ingu þá sé hægt að úti­loka netárás.

„Eng­in inn­brot áttu sér stað í stjórn­kerf­um Red Electrica sem gætu hafa valdið at­vik­inu,“ bætti hann við á blaðamanna­fundi í dag.

Raf­magn hef­ur verið að kom­ast smátt og smátt aft­ur á Spáni eft­ir sleitu­lausa vinnu í gær og í nótt. Prieto seg­ir að raf­orku­kerfið sé nú í jafn­vægi og starfi á eðli­leg­an máta.

Margir brugðu á það ráð að leggja sig á gólfum …
Marg­ir brugðu á það ráð að leggja sig á gólf­um lest­ar­stöðva. AFP

Segj­ast ekki hafa sent frá sér til­kynn­ingu um óvenju­legt lofts­lags­fyr­ir­brigði

Tals­menn portú­galska raf­orku­flutn­ings­kerf­is­ins REN neituðu í dag að hafa staðið að baki skila­boðum sem dreift var á sam­fé­lags­miðlum þar sem fram kom að sjald­gæft lofts­lags­fyr­ir­brigði hefði valdið raf­magns­leys­inu.

Í skila­boðunum, sem voru á portú­gölsku, kom fram að bil­un hefði orðið í spænska raf­orku­kerf­inu sem tengd­ist „óeðli­leg­um sveifl­um sem mæld­ust í há­spennu­lín­um (400 kV), sem væri fyr­ir­bæri sem þekkt er sem loft­knú­inn titr­ing­ur“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert