Stórbruni í London

Frá vettvangi í London.
Frá vettvangi í London. Ljósmynd/X

Mik­ill eld­ur blossaði upp í raf­veitu­stöð í vest­ur­hluta London í morg­un og vinna 100 slökkviliðsmenn að því að ráða niður­lög­um elds­ins á Aber­deen Place í Maida Vale.

Þá kviknaði eld­ur í nær­liggj­andi í íbúðar­húsi en til­kynnt var um elds­voðann klukk­an hálf sex í morg­un. Fimmtán slökkviliðsbíl­ar komu á staðinn og hef­ur íbú­um á nær­liggj­andi svæðum verið bent á að halda glugg­um og hurðum lokuðum þar sem mik­ill reyk­ur er á svæðinu.

Yf­ir­maður slökkviliðs- og björg­un­ar­stöðvar­inn­ar, Paul Morg­an, sem er á staðnum seg­ir við Even­ing Stand­ard að eld­ur­inn sé mjög sýni­leg­ur og mik­ill reyk­ur. Óljóst er hvað olli elds­voðanum en ekki hef­ur verið til­kynnt um slys á fólki en 80 hafa verið flutt­ir frá heim­il­um sín­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert