16 ára piltur grunaður um morðin

Af vettvangi skotárásarinnar í Uppsölum í gær.
Af vettvangi skotárásarinnar í Uppsölum í gær. mbl.is/Gunnlaugur Snær

16 ára pilt­ur hef­ur verið hand­tek­inn grunaður um þrjú morð í Upp­söl­um í Svíþjóð í gær. Hinir látnu eru ung­ir menn á aldr­in­um 15-20 ára. 

Þetta kom fram á blaðamanna­fundi lög­regl­unn­ar í Upp­söl­um í morg­un. Skotárás­in átti sér stað við hár­greiðslu­stofu í borg­inni.

„Við vor­um fljót á staðinn og inni á hár­greiðslu­stof­unni fund­ust þrír látn­ir,“ sagði Erik Åker­lund, yf­ir­maður lög­regl­unn­ar í Upp­söl­um, á blaðamanna­fund­in­um.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Expressen voru all­ir þrír skotn­ir í höfuðið og látn­ir þegar lög­regl­an fann þá. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sænska rík­is­tút­varps­ins, SVT, kom einn hinna látnu fram í fyrri rann­sókn á verknaði sem beind­ist gegn ætt­ingja klíku­for­ingj­ans Ismail Abdo. Ekki er vitað hvort hægt sé að tengja það á ein­hvern hátt við skotárás­ina í gær.

„Við get­um ekki sagt að það séu skýr tengsl við nein átök glæpa­gengja núna, en það er eitt af því sem við erum að skoða sér­stak­lega,“ sagði lög­reglu­stjór­inn Erik Åker­lund á blaðamanna­fundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert