Rafmagnsleysið hafði áhrif á Grænlendinga

„Við munum draga lærdóm af þessu rafmagnsleysi í okkar framtíðarstarfi,“ …
„Við munum draga lærdóm af þessu rafmagnsleysi í okkar framtíðarstarfi,“ segir rekstrarstjóri grænlenska fjarskiptafyrirtækisins Tusass. AFP

Síma- og netteng­ing­ar féllu út hjá þúsund­um Græn­lend­inga frá mánu­dags­kvöldi til aðfara­næt­ur þriðju­dags vegna um­fangs­mik­ils raf­magns­leys­is sem varð á Íberíu­skag­an­um á mánu­dag.

Græn­lenska fjar­skipta­fyr­ir­tækið Tusass greindi frá því á mánu­dag að sam­band hefði rofnað við búnað þess í spænska bæn­um Maspalom­as.

Hafði áhrif á nyrstu og syðstu hluta lands­ins

Að sögn rekstr­ar­stjóra Tusass, Jon­as Hassel­ri­is, er fyr­ir­tækið háð alþjóðleg­um net­kerf­um og geta raf­magnstrufl­an­ir, líkt og sú sem varð á Spáni, í und­an­tekn­ing­ar­til­vik­um haft áhrif á sam­skipti á Græn­landi.

Trufl­un­in varð til þess að þúsund­ir Græn­lend­inga misstu farsíma- og netteng­ing­ar í nyrstu og syðstu hlut­um lands­ins.

„Við mun­um draga lær­dóm af þessu raf­magns­leysi í okk­ar framtíðar­starfi,“ seg­ir Hassel­ri­is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert