Sjö létust í drónaárásum Úkraínumanna í nótt og tveir létust í drónaárásum Rússa.
Úkraínumenn gerðu árás á markað í bænum Oleshky sem er hernuminn af Rússum í Kerson-héraði í suðurhluta Úkraínu.
„Úkraínski herinn gerði stórfellda árás með FPV-drónum á almenna borgara.... Að minnsta kosti sjö manns hafa látist og yfir 20 særst,“ skrifaði Vladimír Saldo, leppstjóri Rússa í Kerson-héraði, á Telegram.
Drónaárás frá Rússum í nótt drap að minnsta kosti tvo og særði 15 aðra á íbúðasvæði í borginni Odesa, samkvæmt neyðarþjónustu Úkraínu.
„Því miður létust tveir samkvæmt bráðabirgðaupplýsingum og 15 til viðbótar særðust,“ sagði neyðarþjónusta Úkraínu á Telegram.
Árásinni var lýst sem „gríðarlegri“ og sagt var að háhýsi, einbýlishús, stórmarkaður, skóli og bílar hefðu skemmst.