Vance: Búið að endurreisa Berlínarmúrinn

JD Vance er harðorður í garð þýska „valdakerfsins.“
JD Vance er harðorður í garð þýska „valdakerfsins.“ AFP/Kevin Lamarque

Vara­for­seti og ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna gagn­rýna harðlega þá ákvörðun leyniþjón­ustu Þýska­lands að skil­greina þýska þjóðern­is­flokk­inn AfD sem öfga­hægri­hreyf­ingu.

JD Vance, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, skrifaði í færslu á X að AfD væri næst­vin­sæl­asti flokk­ur lands­ins og sá vin­sæl­asti í aust­ur­hluta Þýska­lands. 

„Vest­ur­rík­in rifu Berlín­ar­múr­inn sam­an. Hann hef­ur nú verið end­ur­reist­ur – ekki af Sov­ét­mönn­um eða Rúss­um, held­ur af þýska valda­kerf­inu,“ skrifaði JD Vance.

Ru­bio: „Þetta er dul­bú­in harðstjórn“

Með því að skil­grein­a flokk­inn sem öfga­hægri­hreyf­ingu fá Þýsk yf­ir­völd nú aukn­ar heim­ild­ir til þess að fylgj­ast með starf­semi hans, t.a.m. með síma­hler­un­um og notk­un upp­ljóstr­ara.

Í til­kynn­ingu frá þýsku leyniþjón­ust­unni seg­ir að AfD van­v­irði ákveðna þjóðfé­lags­hópa í Þýskalandi og brjóti gegn mann­legri reisn þeirra. Þá var sagt að viðhorf flokks­ins gagn­vart inn­flytj­end­um og mót­mæl­end­um væri fjand­sam­legt.

Marco Ru­bio, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, sagði á X að Þýska­land ætti að snúa við blaðinu.

„Þetta er ekki lýðræði – þetta er dul­bú­in harðstjórn. Það sem er í raun öfga­kennt er ekki hinn vin­sæli AfD flokk­ur – sem lenti í öðru sæti í ný­leg­um kosn­ing­um – held­ur ban­væn stefna stjórn­valda um opin landa­mæri sem AfD er and­víg­ur. Þýska­land ætti að breyta um kúrs.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert