Barn skemmdi 7,5 milljarða málverk

Verkið er metið á um 42,5 milljónir punda eða 7,5 …
Verkið er metið á um 42,5 milljónir punda eða 7,5 milljarða íslenskra króna. Ljósmynd/Aad Hoogendoorn / Museum Boijmans Van Beuningen

Barni tókst að valda skemmd­um á mál­verk­inu „Grey, Orange on Mar­oon, Nr. 8“ eft­ir Mark Rot­h­ko á safni í Rotter­dam í Hollandi nú á dög­un­um en verkið er metið á um 42,5 millj­ón­ir punda eða 7,5 millj­arða ís­lenskra króna, sam­kvæmt dag­blaðinu AD.

BBC grein­ir frá og seg­ir tals­mann safns­ins, Boijm­ans Van Beun­ingen, hafa sagt að verið væri að skoða næstu skref og hvernig mætti lag­færa verkið. Tjónið varð á yf­ir­borði mál­verks­ins, sem er ólakkað, en litl­ar risp­ur sjást á neðri hluta þess. 

Sér­stak­lega viðkvæmt

„Verið er að leita til sér­fræðinga í Hollandi og er­lend­is. Við erum að kanna hvað við ger­um næst,“ sagði talsmaður­inn og bætti því við að gert væri ráð fyr­ir að hægt yrði að sýna mál­verkið aft­ur í framtíðinni.

Þá var haft eft­ir Sophie McAloo­ne, yf­ir­manni for­vörslu­deild­ar hjá Fine Art Restorati­on Comp­any, að nú­tíma­leg ólökkuð mál­verk eins og „Grey, Orange on Mar­oon, Nr. 8“ væru sér­stak­lega viðkvæm fyr­ir svona skemmd­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert