Lögregla skaut mann í Sigdal

Lögreglan í norska suðausturumdæminu skaut uppivöðslusaman mann í fótinn í …
Lögreglan í norska suðausturumdæminu skaut uppivöðslusaman mann í fótinn í Sigdal eftir að hann dró upp skotvopn á heimili sínu. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Maður nokk­ur ligg­ur nú á sjúkra­húsi í norsku höfuðborg­inni Ósló með skotsár á fæti eft­ir að lög­reglu­menn sem komu að heim­ili hans í Sig­dal í Buskerud sáu sitt óvænna og skutu hann í kjöl­far eins hefðbund­ins aðvör­un­ar­skots.

Hugðist lög­regla heim­sækja mann­inn vegna gruns um skemmd­ar­verk þar í bæn­um á mánu­dag er henni hafði verið til­kynnt um, en sjón­ar­vott­ar höfðu bent á þann grunaða er lög­regla kom á vett­vang. Ekki eru all­ar vega­lengd­ir lang­ar í þessu rúm­lega 800 fer­kíló­metra 3.500 íbúa sveit­ar­fé­lagi í hinu sögu­lega héraði Rin­gerike svo meint­um skemmd­ar­vargi auðnaðist að renna und­an lag­anna vörðum að heim­ili sínu.

Var hon­um veitt eft­ir­för en tók því illa er lög­regla gerði til­raun til að ræða við hann í hí­býl­um hans þar sem hann hafði læst sig inni. Lyktaði mál­um svo að maður­inn kom til dyra lítt við alþýðuskap og með skot­vopn á lofti.

Rann­sókn­ar­nefnd í innri mál­um kvödd til

Norska lög­regl­an hef­ur skamm­byss­ur í læst­um hirsl­um bif­reiða sinna er grípa má til er í harðbakk­ann slær og urðu lög­regluþjón­arn­ir er sinntu út­kall­inu í Sig­dal nú með vopn­um.

Reynd­ist skemmd­ar­varg­ur­inn grunaði ekki áhuga­sam­ur um samn­ingaviðræður við lög­reglu held­ur gerði sig lík­leg­an til að beita sínu vopni sem lauk með fram­an­greindu. Var hon­um komið á sjúkra­hús og tók rann­sókn­ar­nefnd í innri mál­efn­um lög­reglu við þeim hluta máls­ins er sneri að beit­ingu skot­vopns við skyldu­störf svo sem verklags­regl­ur mæla fyr­ir um.

„Ákvörðun var tek­in um að tryggja vett­vang­inn og þjón­ustu­vopnið,“ seg­ir Per Magne Ef­tang, lög­reglu­v­arðstjóri í suðaust­urum­dæmi norsku lög­regl­unn­ar, í sam­tali við norska rík­is­út­varpið NRK og bæt­ir því við að rann­sókn­ar­lög­regl­unni Kripos hafi verið send beiðni um aðstoð við tækni­rann­sókn á vopn­inu.

Sama ferli í öll­um skot­mál­um

Sam­hliða rann­sókn­inni mun rann­sókn­ar­deild­in yf­ir­heyra lög­regluþjón­ana sem ekki hafa heim­ild til að ræðast við fyrr en að yf­ir­heyrslu lok­inni. Allt þetta ferli er gang­sett í hverju ein­asta til­felli sem lög­regla tel­ur sig knúna til að beita skot­vopni gegn borg­ur­un­um við skyldu­störf.

„Við get­um ekki tjáð okk­ur meira um at­b­urðinn vegna rann­sókn­ar­hags­muna,“ seg­ir Espen Reit­an, einnig varðstjóri, er frétta­menn NRK fal­ast eft­ir frek­ari upp­lýs­ing­um um gang mála.

NRK

Af­ten­posten

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert