Tollar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta gætu hafa hjálpað við að tryggja sigur Verkamannaflokksins í Ástralíu í þingkosningum þar í landi, að sögn sérfræðinga.
Trump var langt í frá mikið áhyggjuefni kjósenda Anthony Albanese forsætisráðherra, ólíkt því sem þekktist í kosningum Kanada fyrir þremur dögum.
En sumir telja þó að Trump hafi haft veruleg áhrif á viðsnúning Verkamannaflokksins í skoðanakönnunum og afgerandi kosningaúrslit.
Íhaldsflokkurinn, undir forystu Peter Dutton, hafði leitt skoðanakannanir í þrjá mánuði. Dutton hefur nú misst þingsæti sitt.
Líkindi Dutton við áherslumál Trump um að fækka opinberum störfum fyrir skilvirkari stjórnsýslu gæti hafa fælt kjósendur frá, að sögn Henry Maher, stjórnmálafræðiprófessors í Háskólanum í Sydney.
„Auðvitað, eru önnur áhyggjumál svo sem framfærslukostnaður, varnarmál, heilbrigðisþjónusta og allt annað,“ sagði hann við AFP-fréttaveituna.
„En ef við viljum skilja af hverju stór hluti kjósenda skipti um skoðun í kosningabaráttunni síðustu tvo mánuði, þá held ég að það sé stærsta málið.“
Bandaríkjastjórn hefur lagt á 10% toll á vörur frá Ástralíu sem hefur leitt til óstöðugleika á fjármálamörkuðum. Maher telur það hafa gert kjósendur taugaóstyrka.
Traust ástralskra borgara á helstu bandaþjóð ríkisins hefur minnkað verulega undir stjórn Trumps.
Einungis 36% Ástrala treysta nú Bandaríkjunum samkvæmt skoðanakönnunum. Það er um 20% minna traust en var á árinu 2024.
Fyrr á árinu lýsti Dutton Trump sem „hugsuði“ og „klárum“.
Er leið á kosningabaráttuna tóku bæði Dutton og Albanese hins vegar harðari afstöðu gagnvart Trump og sögðust ekki ætla að verða við kröfum Trumps er kæmi að hagsmunum Ástralíu.
Kate Harrison Brennan, sem var ráðgjafi Juliu Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði stefnur Duttons „álíka og þær sem sæjust í Bandaríkjunum“.
Trump hafði „klárlega“ áhrif á kosningarnar, sagði hún í samtali við AFP.
Ekki voru þó allir sérfræðingar sem AFP ræddi við sammála um áhrif Trumps.
Paul Williams, stjórnmálafræðingur við Griffith-háskóla, sagði að Albanese hefði unnið jafnvel þó Joe Biden væri enn forseti Bandaríkjanna.
Hann sagði Íhaldsflokkinn aðeins hafa lagt fram nokkrar skýrar stefnur, líkt og notkun kjarnorku í Ástralíu, og síðan ekki getað útskýrt stefnurnar fyrir kjósendum.
Williams sagði óákveðna kjósendur ekki hafa forðast Dutton af því þeir minntu á Trump.
„Þeir gerðu það út af Peter Dutton. Peter Dutton hefur tapað kosningunni af því hann er Peter Dutton.“