Þrjú ungabörn á meðal látinna

Mynd úr safni af árás sem gerð var á Khan …
Mynd úr safni af árás sem gerð var á Khan Yunis-flóttamannabúðirnar í apríl. AFP

Ell­efu lét­ust í árás Ísra­els­manna á Khan Yun­is-flótta­manna­búðirn­ar á Gaza í nótt, þar á meðal þrjú ung­börn.

Al­manna­varn­ir á Gasa greindu frá því að árás hafi verið gerð á fjöl­skyldu­heim­ili Al-Bayram í búðunum í suður­hluta Gasa um þrjú­leytið í nótt á staðar­tíma.

Átta hinna látnu eru úr sömu fjöl­skyldu, þar á meðal börn­in þrjú. Tvö voru eins árs og hið þriðja var eins mánaðar gam­alt.

Ísra­els­her hef­ur ekki tjáð sig um árás­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert