Lítil flugvél brotlenti í Kaliforníu

Flugvélin brotlenti í Ventura-sýslu.
Flugvélin brotlenti í Ventura-sýslu. X/Slökkviliðið í Ventura-sýslu

Lít­il flug­vél brot­lenti í garði í íbúðar­hverfi í suður­hluta Kali­forn­íu með þeim af­leiðing­um að tveir lét­ust. 

Vél­in rakst á tvö hús í Simi-dal norðvest­ur af Los Ang­eles um tvöleytið að staðar­tíma í gær.

Tveir voru um borð, auk hunds, og lét­ust ein­stak­ling­arn­ir báðir. 

Íbúar voru í hús­un­um er árekst­ur­inn varð en eng­an inn­an­dyra sakaði. 

Vél­in var af gerðinni Van RV-10 og var á leið á Cam­arillo-flug­völl í Ventura-sýslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert