Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aflýst öllum ferðum félagsins til Tel Avív í Ísrael þar til á þriðjudag í kjölfar árásar nærri flugvellinum í morgun.
Uppreisnarmenn Húta í Jemen gerðu árás á Ben Gurion-flugvöllinn í morgun.
Lufthansa sagði í yfirlýsingu að ákvörðunin hafi verið tekin í ljósi „núverandi stöðu“.
Uppfært kl. 12.07:
Indverska flugfélagið Air India hefur einnig aflýst öllum sínum ferðum til Tel Avív fram á þriðjudag vegna árásarinnar.
Uppfært kl. 12.25:
Breska flugfélagið British Airways ætlar að aflýsa sínum flugferðum fram á miðvikudag.