Franska lögreglan réðst í aðgerðir um helgina til þess að frelsa mann sem hafði verið rænt í París í þeim tilgangi að neyða son hans til að greiða lausnargjald. Sonurinn hefur auðgast af sölu rafmyntar.
Fimm voru handteknir í aðgerðum lögreglu. Þeir eru allir á þrítugsaldri.
Fórnarlamb mannránsins hefur ekki verið nafngreint en hann fannst í Essonne-hverfinu í París í gærkvöldi. Hann hafði þá verið í haldi frá því á fimmtudagsmorgun.
Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar réðust fjórir menn í lambhúshettum að manninum og komu honum fyrir í sendiferðabíl.
„Fórnarlambið er faðir manns sem hefur auðgast af sölu rafmynta og var glæpurinn framinn í nafni lausnargjalds,“ sagði í yfirlýsingu saksóknara.
Franski miðilinn Le Parisien greindi frá því að mannræningjarnir hefðu krafist lausnargjalds á milli 5 og 7 milljóna evra, eða á bilinu 750 milljóna til eins milljarðs króna.
Samkvæmt heimildum AFP hafði einn af fingrum föðurins verið skorinn af hendi hans.
Eiginkona fórnarlambsins sagði rannsakendum að eiginmanni hennar og syni þeirra hefði áður verið hótað. Þeir áttu báðir rafmyntarfyrirtæki á Möltu.
Í janúar var öðrum frönskum rafmyntarauðkýfingi og félaga hans rænt.
David Balland hafði stofnað fyrirtækið Ledger sem er metið á meira en einn milljarð dollara. Fingur Ballard var skorinn af af ræningjunum sem kröfðust lausnargjalds.
Hann var látinn laus degi síðar. Unnusta hans fannst bundin í skotti bíls í Essonne-hverfinu í París.
Níu einstaklingar eru grunaðir í því máli, þar á meðal er höfuðpaurinn sem er 26 ára gamall og hefur áður verið dæmdur fyrir mannrán.