Pólverjar munu ganga að kjörborðinu þann 18. maí til að velja forseta til næstu fimm ára. Hinn miðjusinnaði Rafał Trzakowski er talinn vera sigurstranglegastur.
Miðjustjórn Donalds Tusk forsætisráðherra vonast til að binda enda á óþægilegt samstarf með íhaldssama forsetanum Andrzej Duda. Hefur Duda ítrekað beitt neitunarvaldi sínu gegn umbótarhugmyndum flokks Tusks. Karol Nawrocki, helsti mótframbjóðandi Trzakowski, nýtur stuðnings Duda og gæti það haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir stjórn Tusk ef hann nær kjöri.
Fyrri umferð kosninganna fer fram sunnudaginn 18. maí og seinni umferð kosninganna fer fram þann 1. júní.
Ef einhver frambjóðandi hlýtur meira en 50% atkvæða er ekki farið í seinni umferð og kosningu er lokið. Ef marka má skoðanakannanir virðist líklegt að farið verði í seinni umferð kosninganna.
Alls eru 17 frambjóðendur á lista fyrir komandi forsetakosningar. Rafał Trzakowski, frambjóðandi stærsta stjórnarflokks Póllands, miðjuflokksins Civic Platform (PO), er talinn líklegastur til að bera sigur úr býtum.
Trzakowski hefur undanfarin ár verið borgarstjóri Varsjár og nýtur hann einnig stuðnings forsætisráðherra Póllands, Donald Tusks. Hann hefur mælst með 30-40% fylgi í skoðanakönnunum og hefur hann talsvert forskot á hina frambjóðendurna.
Baráttan um að komast í aðra umferð er hörð. Þar ber helst að nefna tvo frambjóðendur sem eru mótfallnir Evrópusambandinu og eru þeir nokkuð jafnir í fylgi. Nawrocki er talinn vera líklegastur til að mæta Trzakowski í seinni umferð kosninganna. Nawrocki nýtur stuðnings hægri stjórnarandstöðuflokksins Lög og réttlæti (PiS) og fráfarandi forseta, Andrzejs Duda.
Hann mælist með um 19 til 23% atkvæða, með örlítið forskot á hinn 38 ára gamla Slawomir Mentzen, sem nýtur stuðnings hægri öfgaflokksins Nowa Nadzieja (NN).
Báðir mótframbjóðendur Trzakowski eru aðdáendur Donalds Trump Bandaríkjaforseta en Nawrocki fundaði með Trump fyrr í vikunni þar sem hann átti samtal um bandalag og samstarf milli Póllands og Bandaríkjanna. Nawrocki hefur hlotið mikla gagnrýni þingmanna í Póllandi fyrir fundinn.
Pólverjar sem búsettir eru á Íslandi og eru með kosningarétt geta kosið til forseta í pólska sendiráðinu við Þórunnartún 2 í Reykjavík.