Ungmenni skotið í Svíþjóð

Enn ein skotárásin var gerð í Svíþjóð í nótt og …
Enn ein skotárásin var gerð í Svíþjóð í nótt og særðist þar átján ára piltur. Eru meiðsli hans ekki lífsháskaleg. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Átján ára gam­all maður var flutt­ur  á sjúkra­hús í Stokk­hólmi í Svíþjóð á öðrum tím­an­um í nótt að þarlend­um staðar­tíma með skotsár er lækn­ar töldu þó ekki ganga nærri lífi hans.

Barst lög­reglu til­kynn­ing um skot­hvelli í norðvest­ur­hluta borg­ar­inn­ar þar sem Häs­sel­by strand heit­ir og er bif­reiðar henn­ar komu á vett­vang hitt­ist maður­inn þar fyr­ir með fyrr­greinda áverka.

Tjái sig ekki gerr

„Okk­ur var til­kynnt um há­væra hvelli og er komið var á vett­vang fannst sá sem skot­inn var þar,“ seg­ir Nadya Nort­on upp­lýs­inga­full­trúi lög­reglu við sænska rík­is­út­varpið SVT og bæt­ir því við að lög­regla geti ekki tjáð sig frek­ar um málið að svo komnu, aðeins að fórn­ar­lambið sé átján ára gam­alt.

Vann tækni­deild­ar­fólk lög­reglu að því fram á morg­un að viða að sér vís­bend­ing­um á vett­vangi auk þess sem hún hef­ur rætt við vitni og aðra er nærstadd­ir voru vett­vangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert