Joe Biden, fyrrverandi bandaríkjaforseti, sakar eftirmann sinn, Donald Trump, um að friðþægja rússnesk yfirvöld með því að á þrýsta á Úkraínu að gefa upp landsvæði sitt.
Þetta kemur fram í fyrsta viðtali sem birtist við Biden síðan hann lét af störfum sem forseti.
BBC birtir viðtalið en í því segir Biden að Vladimír Pútín Rússlandsforseti trúi að Úkraína sé hluti af Rússlandi og að „hver sá sem heldur að hann muni stoppa“ ef að úkraínsk yfirráðasvæði verði látið af hendi sem hluti af friðarsamningi sé kjáni.
Spurður út í tillögu Trumps um að úkraínsk yfirvöld láti af hendi landsvæði til að binda enda á stríðið sagði Biden: „Þetta er nútíma friðþæging.“
„Hvað í ósköpunum er í gangi hér? Hvaða forseti talar svona? Þetta er ekki hver við erum. Við snýst um frelsi, lýðræði, tækifæri,“ sagði Biden.
Viðtalið við Biden birtist í þættinum Today í morgun en nú eru rúmlega 100 dagar liðnir frá því að Trump tók við völdum. Á þeim tíma hefur honum tekist að gjörbreyta bæði innanríkis- og utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
„Ég er áhyggjufullur um að Evrópa muni missa traust á staðfestu Bandaríkjanna og forystu Bandaríkjanna og heimsins. Ekki aðeins til að takast á við NATO heldur einnig önnur mál sem hafa afleiðingar,“ sagði Biden.
Undir lok viðtalsins var Biden spurður hvort honum finnist Trump hegða sér eins og kóngur frekar en forseti.
„Hann er ekki að hegða sér eins og forseti úr Repúblikanaflokknum,“ svaraði Biden.
Hann bætti þó við að hann hefði nú minni áhyggjur af framtíð lýðræðis í Bandaríkjunum en hann hafi haft um tíma því hann heldur að Repúblikanaflokkurinn sé „að átta sig á því hvað Trump snýst um“.