Skapa hættu á „allsherjarstríði“

00:00
00:00

Tyrk­nesk yf­ir­völd hafa varað við mögu­legu „alls­herj­ar­stríði“ milli Ind­lands og Pak­ist­an eft­ir að Ind­land gerði eld­flauga­árás­ir á Pak­ist­an í gær­kvöldi. Þýsk stjórn­völd hyggj­ast boða til neyðar­fund­ar vegna stöðunn­ar.

Greint hef­ur verið frá því að 26 manns lét­ust og 46 slösuðust í kjöl­far árás­anna, sem beind­ust að svæði í Kasmír-héraðinu sem er und­ir stjórn Pak­ist­an.

Pak­ist­an svaraði árás­un­um í nótt, og að minnsta kosti sjö ind­versk­ir rík­is­borg­ar­ar hafa fallið í ind­verska hluta Kasmír-héraðs.

Indland og Pakistan hafa lengi átt í deilum vegna Kasmír-héraðs, …
Ind­land og Pak­ist­an hafa lengi átt í deil­um vegna Kasmír-héraðs, en árás­irn­ar í gær og nótt eru al­var­leg­ustu átök­in milli ríkj­anna í rúma tvo ára­tugi. AFP

Nauðsyn­legt að koma í veg fyr­ir frek­ari stig­mögn­un

„Árás­ir Ind­lands í gær­kvöldi skapa hættu á alls­herj­ar­stríði,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ingu frá ut­an­rík­is­ráðuneyti Tyrk­lands. Þar kem­ur einnig fram að ráðuneytið for­dæmi árás­ir sem bein­ast að óbreytt­um borg­ur­um og borg­ara­leg­um innviðum.

Nemendur tóku þátt í neyðarviðbragðsæfingu í Nýju-Delí í Indlandi í …
Nem­end­ur tóku þátt í neyðarviðbragðsæfingu í Nýju-Delí í Indlandi í dag. Spenna á milli Ind­lands og Pak­ist­an hef­ur auk­ist til muna. AFP

Þýsk stjórn­völd hafa einnig brugðist við at­b­urðunum og telja nauðsyn­legt að komið verði í veg fyr­ir frek­ari stig­mögn­un milli ríkj­anna. Í yf­ir­lýs­ingu frá þýska ut­an­rík­is­ráðuneyt­inu seg­ir að boðað verði til neyðar­fund­ar og að þýsk­ir emb­ætt­is­menn séu í sam­bandi við bæði Ind­land og Pak­ist­an.

Ind­land og Pak­ist­an hafa lengi átt í deil­um vegna Kasmír-héraðs, en árás­irn­ar í gær og nótt eru al­var­leg­ustu átök­in milli ríkj­anna í rúma tvo ára­tugi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert