Sænskir saksóknarar fara fram á sex ára fangelsisdóm yfir konu sem hefur kallað sig „rusladrottninguna“ í Svíþjóð auk fjögurra annarra. Málið varðar ólöglega losun á eitruðum úrgangi.
Þetta kom fram á lokadegi aðalmeðferðar málsins, sem er umfangsmesta sakamál landsins þegar kemur að umhverfisglæpum.
Fyrirtækið Think Pink er sakað um að hafa losað eða grafið um 200.000 tonn af úrgangi frá Stokkhólmi og nágrenni á 21 stað milli áranna 2015 til 2020, án þess að hafa haft í hyggju að meðhöndla hann rétt.
Fyrrverandi forstjóri þess, Bella Nilsson, sem er fyrrverandi nektardansmær, er ákærð fyrir alvarlegan umhverfisglæp.
Tveir aðrir, sem gegndu sömuleiðis stöðu forstjóra á umræddu tímabili, eru jafnframt bornir sömu sökum. Það eru þeir Thomas Nilsson, sem er fyrrverandi eiginmaður Bellu Nilsson, og Leif-Ivan Karlsson, sem er sagður vera sérvitur frumkvöðull sem lék í raunveruleikaþætti sem fjallaði um yfirdrifinn lífsstíl hans.
Þá eru þeir Robert Silversten og Tobias Gustafsson sakaðir um að hafa skipulagt flutning úrgangsins.
Allir sakborningarnir fimm neita sök.
„Við gerðum allt rétt. Við gerðum það löglega. Við fylgdum lögunum,“ sagði Bella Nilsson við héraðsdóminn.