Sprengingar á flugvelli í Kasmír-héraði

Átökin á milli Pakistans og Indlands hafa stigmagnast. Frá Kasmír-héraði. …
Átökin á milli Pakistans og Indlands hafa stigmagnast. Frá Kasmír-héraði. Mynd úr safni. AFP

Há­vær­ar spreng­ing­ar heyrðust koma frá flug­velli við Jammu-borg í Kasmír-héraði. Völl­ur­inn til­heyr­ir því svæði sem Ind­verj­ar ráða yfir í héraðinu.

Fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri í Jammu-borg og Kasmír-héraði, Shesh Paul Vaid, ritaði „há­vær­ar spreng­ing­ar“ á sam­fé­lags­miðla.

Heim­ild­armaður AFP-frétta­veit­unn­ar sagðist ekki geta staðfest hvað hefði or­sakað spreng­ing­una. Þá gat hann ekki staðfest að þær tengd­ust stig­mögn­un átaka milli Pak­ist­ans og Ind­lands.

Hvetja rík­in til að draga úr spennu

Fjöldi þjóða hef­ur lýst áhyggj­um vegna þeirra stöðu sem upp er kom­in í átök­un­um milli Ind­lands og Pak­ist­ans.

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur hvatt rík­in til að grípa til taf­ar­lausra aðgerða til að draga úr spennu þeirra á milli.

Tyrk­nesk yf­ir­völd hafa varað við mögu­legu alls­herj­ar­stríði á milli þjóðanna eft­ir að Ind­land gerði flug­skeyta­árás­ir á Pak­ist­an á þriðju­dag. Pak­ist­an­ar svöruðu með árás­um á ind­verska hluta Kasmír-héraðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert