Talin hafa eitrað fyrir fjölskyldu eiginmannsins

mbl.is/Hjörtur

Kona sem dó af völd­um eitraðra sveppa eft­ir að hafa neytt well­ingt­on­steik­ar í heima­húsi í Ástr­al­íu sagði lækni rétt fyr­ir dauða sinn að steik­in hefði verið góm­sæt. Þetta kom fram í rétt­ar­höld­um yfir Erin Patter­son sem ákærð hef­ur verið fyr­ir að myrða for­eldra og móður­syst­ur eig­in­manns síns. 

Patter­son, sem er á fimm­tugs­aldri, er einnig ákærð fyr­ir til­raun til mann­dráps en frændi eig­in­manns henn­ar lifði af eft­ir langa dvöl á spít­ala. 

Lækn­ir­inn sem tók við tveim­ur af fórn­ar­lömb­un­um bar vitni í mál­inu og sagði að þau hefðu verið með meðvit­und við komu á spít­al­ann. Þeim hefði ber­sýni­lega liðið illa en átt auðvelt með al­menn sam­skipti. 

Patter­son, sem er grunuð um að hafa eitrað fyr­ir fólk­inu, neit­ar allri sök í mál­inu en áætlað er að  rétt­ar­höld­in muni standa yfir í sex vik­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert