Að vera Bandaríkjamaður hefur ekki verið málið

Frá guðsþjónustu í Santo Domingo-kirkjunni í Lima í gær.
Frá guðsþjónustu í Santo Domingo-kirkjunni í Lima í gær. AFP

Kjör nýs páfa, hins banda­ríska Leó XIV, kom mörg­um á óvart, ekki síst lönd­um hans inn­an banda­rísku kirkj­unn­ar. Í Perú, þar sem Leó starfaði lengi, fagnaði fólk kjöri hans ákaft.

Kirkju­klukk­ur hljómuðu þegar kaþól­ikk­ar söfnuðust sam­an í Líma, höfuðborg Perú, á fimmtu­dag­inn til að fagna kjöri Leós XIV en hann skildi þar eft­ir sig djúp spor eft­ir ára­langa þjón­ustu í suður­am­er­íska rík­inu.

„Hann er góður maður, jafn­vel við þá sem eru slæm­ir,“ sagði hinn 73 ára gamli prest­ur Juan de Dios Rojas við frétta­stofu AFP um ný­kjör­inn páfa.

Ljós­mynd af Leó XIV, sem mun halda messu fyr­ir kardí­nála í Sixtínsku kap­ell­unni í dag, er nú til sýn­is í kap­ellu prests­ins þar sem kaþól­ikk­ar úr söfnuði Rojas hafa safn­ast sam­an til að fagna kjör­inu.

Merki frá Guði

Leó XIV steig fyrst fæti á perúska grund fyr­ir um fjór­um ára­tug­um sem trú­boði, áður en hann varð bisk­up í bisk­ups­dæm­inu Chiclayo í norðvest­ur­hluta lands­ins og öðlaðist rík­is­borg­ara­rétt árið 2015.

„Páfinn er perúsk­ur. Það er merki um að Guð sé að senda ein­hvern sem mun leysa vanda­mál lands­ins,“ sagði Sal­vador Oli­va Ramos, 75 ára eft­ir­launaþegi, þar sem hann var stadd­ur fyr­ir utan dóm­kirkj­una í Líma.

„Hann borðar ceviche!“ bætti hann við.

„Ég grét af gleði þegar ég heyrði frétt­irn­ar. Þetta er bless­un fyr­ir Perú, þó að hann hafi fæðst í Banda­ríkj­un­um, því hann bjó í Perú í nokk­ur ár,“ sagði Carol­ina Flor­es, 38 ára lög­fræðing­ur, við frétta­stofu AFP.

Nelson J. Perez, erkibiskupinn í Fíladelfíu.
Nel­son J. Perez, erki­bisk­up­inn í Fíla­delfíu. AFP

Kom á óvart

Það kom mörg­um í opna skjöldu að Banda­ríkjamaður hafi verið kjör­inn sem páfi, ekki síst erki­bisk­upn­um í Fíla­delfíu en páfinn gekk í há­skóla í borg­inni.

Í sam­tali við AFP sagði erki­bisk­up­inn, Nel­son J. Perez, að hann „hefði í raun ekki haldið að það yrði hann“.

„Ekki út af hon­um, held­ur því að það að vera Banda­ríkjamaður hef­ur bara ekki verið málið.“

„Vá, ég trúi þessu ekki“

Perez frétti tíðind­in af kjöri nýs páfa á leið sinni frá Róm, þar sem hann hafði verið á ferðalagi.

„Ég fékk skila­boð frá ein­um starfs­manna minna. Þar sagði í stuttu máli: „Kardí­náli Prevost, Leó XIV“,“ sagði Perez og bætti við:

„Ég var bara svona: „Vá, ég trúi þessu ekki“.“

Perez þekkti Prevost per­sónu­lega en þeir störfuðu sam­an í Perú snemma á þess­ari öld.

„Aldrei datt mér í hug að þessi ein­stak­ling­ur myndi verða páfi,“ sagði Perez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert