Átti í flóknu sambandi við fórnarlömbin

Hér má sjá teiknaða mynd af Erin Patterson við réttarhöldin.
Hér má sjá teiknaða mynd af Erin Patterson við réttarhöldin. AFP

Áströlsk kona sem ákærð er fyr­ir þre­falt morð og eina til­raun til mann­dráps af völd­um eitraðra sveppa í máltíð, sem hún bar fram árið 2023, er sögð hafa sjald­an áður boðið fórn­ar­lömb­um sín­um í mat. Þetta kem­ur fram í grein um rétt­ar­höld­in af frétta­veitu AFP.

Kon­an, hin fimm­tuga Erin Patter­son, neit­ar allri sök í mál­inu en rétt­ar­höld í mál­inu standa nú yfir. 

Sam­tal við ung­an son kon­unn­ar, sem tekið var upp í kjöl­far dauðsfall­anna, var í dag spilað á rétt­ar­höld­un­um. Þar kom fram að sú ákærða hafi einu sinni áður boðið fórn­ar­lömb­um sín­um, for­eldr­um eig­in­manns síns, í mat en aldrei áður föður­syst­ur hans og eig­in­manni henn­ar. 

For­eldr­ar eig­in­manns­ins og föður­syst­ir hans lét­ust eft­ir neyslu á matn­um en eig­inmaður föður­syst­ur hans lifði af eft­ir langa dvöl á spít­ala. 

For­eldr­arn­ir áttu í storma­sömu sam­bandi 

Son­ur kon­unn­ar minnt­ist á í upp­tök­unni að for­eldr­ar hans hafi átt í „mjög“ nei­kvæðu sam­bandi sem leiddi til dauðsfall­anna.

„Pabbi ger­ir marga hluti til þess að reyna að særa mömmu.“ 

Maður kon­unn­ar, Simon Patter­son, hafi þá einnig hafnað boði henn­ar um að koma í há­deg­is­mat þenn­an ör­laga­ríka dag. 

Borðuðu af­gang­ana af matn­um

Morg­un­inn eft­ir há­deg­is­verðinn sagði son­ur kon­unn­ar að móðir hans hafi kvartað und­an ógleði og van­líðan og að þau hafi sleppt því að mæta í kirkju þenn­an dag­inn vegna þess.

Um kvöldið hafi þau borðað af­ganga ef kjöt­inu en að kon­an hafi tekið svepp­ina af þar sem börn­in henn­ar væru „mat­vönd“.

Bæði son­ur henn­ar og dótt­ir segj­ast ekki hafa veikst eft­ir neyslu á matn­um.

Ákæru­valdið tel­ur að Patter­son hafi vís­vit­andi eitrað fyr­ir gest­um sín­um en verj­end­ur kon­unn­ar segja að þetta hafi verið „hræðilegt slys“.

Talið er að rétt­ar­höld­in muni standa yfir næstu fimm vik­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert