Pakistanar strax sakaðir um að rjúfa vopnahlé

Pakistan og Indland samþykktu tafarlaust vopnahlé í dag.
Pakistan og Indland samþykktu tafarlaust vopnahlé í dag. AFP

Ráðamenn í Indlandi hafa strax sakað Pak­ist­ana um rjúfa vopa­hléið sem um var samið fyrr í dag.

Starfs­menn AFP-frétta­veit­unn­ar segj­ast hafa heyrt spreng­ing­ar í Sr­inag­ar í Kasmír, sem er und­ir stjórn Ind­lands, nokkr­um tím­um eft­ir að Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti um vopna­hléið fyrr í dag.

„Það er ekk­ert vopna­hlé,“ skrif­ar Omar Abdullah, for­sæt­is­ráðherra í Jammu og Kasmír, á sam­fé­lags­miðil­inn X. Hann seg­ir að loft­varna­kerfi í Sr­inag­ar sé farið í gang. 

„Pak­ist­an hef­ur brotið tví­hliða sam­komu­lagið við Ind­land,“ hef­ur AFP einnig eft­ir heim­ild­ar­manni sín­um inn­an rík­is­stjórn­ar Ind­lands.

Ann­ar heim­ild­armaður AFP-frétta­veit­unn­ar inn­an rík­is­stjórn­ar Ind­lands sagði fyrr í dag að Ind­land og Pak­ist­an hefðu samið beint við hvort annað, ólíkt því sem ráðamenn í Banda­ríkj­un­um höfðu haldið fram. 

Um 60 hafa manns fallið í árás­un­um vegna átaka Ind­lands og Pak­ist­ans síðustu daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert