Skiptast á eldflaugaárásum

Mótmælendur í Pakistan brenna hér eftirmynd af Narendra Modi, forsætisráðherra …
Mótmælendur í Pakistan brenna hér eftirmynd af Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands. AFP/Husnain Ali

Ind­verj­ar og Pak­ist­an­ar hafa nú í kvöld skipst á eld­flauga­árás­um. Pak­ist­anski her­inn sakaði fyrr í kvöld Ind­verja um að hafa skotið eld­flaug­um á þrjá af herflug­völl­um sín­um, en þar af var einn í ná­grenni Islama­bad, höfuðborg­ar Pak­ist­ans. 

Ah­med Sharif Chaudhry, und­ir­hers­höfðingi og talsmaður pak­ist­anska hers­ins, sagði að Ind­verj­ar hefðu skotið eld­flaug­um á bækistöðvar Pak­ist­ana í Nur Khan, Murid og Shor­kot. „Nú skuluð þið bara bíða eft­ir svari okk­ar,“ sagði Chaudhry og beindi orðum sín­um til Ind­lands. 

Nur Khan-herflug­völl­ur­inn er í Rawalp­indi, en þar eru jafn­framt höfuðstöðvar pak­ist­anska hers­ins. Er bækistöðin um 10 kíló­metr­um frá Islama­bad.

Stjórn­völd í Pak­ist­an hafa nú lokað loft­helgi lands­ins fram til kl. 7 að morgni laug­ar­dags að ís­lensk­um tíma, og sögðu rík­is­fjöl­miðlar þar í landi nú um miðnætti að ís­lensk­um tíma að svar Pak­ist­ana við árás­um Ind­verja væri hafið. 

Munu Pak­ist­an­ar m.a. hafa skotið eld­flaug­um í átt að borg­un­um Am­rits­ar í Punjab-héraði og Jammu í Kasmír. 

Ótt­ast frek­ari stig­mögn­un

Ríki heims hafa hvatt bæði Ind­verja og Pak­ist­ana til þess að sýna still­ingu, en bæði ríki búa yfir kjarn­orku­vopn­um. 

Óvíst er um fram­hald átak­anna, en greint var frá því í gær að ind­versk her­skip með of­ur­hljóðfrá­um stýrif­laug­um hefðu siglt nær Pak­ist­an á síðustu dög­um og gætu þau m.a. reynt að ráðast á Karachi, stærstu hafn­ar­borg Pak­ist­ans. Slík árás gæti haft gríðarleg áhrif á efna­hag Pak­ist­ana, og myndi því kalla á viðbrögð frá Pak­ist­an.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert