Fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir umtalsverðan árangur hafa náðst í formlegum tollaviðræðum við Kína um helgina. Markmið viðræðnanna var að draga úr viðskiptaspennu ríkjanna sem snöggjókst þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti tollastríði á hendur Kínverjum.
„Ég er ánægður að geta greint frá því að við höfum náð umtalsverðum árangri milli Bandaríkjanna og Kína í þessum afar mikilvægu viðskiptaviðræðum,“ sagði Scott Bessent fjármálaráðherra við blaðamenn í Genf í Sviss í dag, en þar fóru viðræðurnar fram í dag og í gær.
Þetta var fyrsti formlegi fundurinn milli þjóðanna síðan Bandaríkin undir stjórn Donalds Trump forseta hækkuðu tolla á kínverskar vörur í 145%, sem Kína svaraði með 125% tollum á bandarískar vörur.
Bessent ekki við spurningum frá fjölmiðlum en lofaði að ítarleg skýrsla um niðurstöður viðræðnanna myndi birtast á morgun, mánudag.
Einnig tóku þátt í viðræðunum Jamieson Greer, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, og He Lifeng, varaforsætisráðherra Kína.
Tjáði Greer fjölmiðlum í dag að ágreiningur Bandaríkjanna og Kína „væri ekki eins mikill og kannski var talið“.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur einnig tjáð sig um viðræðurnar á miðli sínum Truth Social, þar sem hann segir þær hafa verið „mjög góðar“ og lýsir þeim jafnframt sem „algjörri endurstillingu sem um var samið á vingjarnlegan en uppbyggilegan hátt“.
Viðræðurnar fara fram á meðan bæði löndin glíma við efnahagslegar áskoranir. Bandaríkin hafa orðið fyrir samdrætti í hagkerfinu, en Kína hefur reynt að örva hagkerfið sitt, meðal annars með lækkun vaxta og lausafjárútgáfu, til að bregðast við áhrifum tollastríðsins.