22 látnir eftir loftárás á skóla

Samið hafði verið um vopnahlé til að halda uppbyggingarstarfi vegna …
Samið hafði verið um vopnahlé til að halda uppbyggingarstarfi vegna jarðskjálftans áfram. AFP

22 eru látn­ir, þar á meðal 20 börn, eft­ir loft­árás her­for­ingja­stjórn­ar­inn­ar í Mjan­mar á skóla í land­inu í dag. Árás­in átti sér stað í miðju um­sömdu vopna­hléi vegna jarðskjálfta sem reið yfir svæðið.

Árás­in var gerð á skóla í þorp­inu Oe Htein Kwin sem er um 100 kíló­metra norðvest­ur af upp­tök­um jarðskjálft­ans sem reið yfir 28. mars. Þúsund­ir lét­ust í skjálft­an­um og varð eyðilegg­ing í land­inu gíf­ur­leg.

Orr­ustuþotan var of hröð

„Eins og staðan er núna hafa alls 22 manns látið lífið, 20 börn og tveir kenn­ar­ar,“ sagði 34 ára kenn­ari við skól­ann, sem óskaði nafn­leynd­ar, um árás­ina í dag.

„Við reynd­um að dreifa börn­un­um, en orr­ustuþotan var of hröð og varpaði sprengj­um sín­um,“ bætti hann við.

Mennta­mála­yf­ir­völd á svæðinu hafa staðfest fjölda lát­inna.

Vopna­hléið átti að standa út mánuðinn

Borg­ara­styrj­öld hef­ur geisað í Mjan­mar síðan her­inn steypti borg­ara­legri rík­is­stjórn af stóli árið 2021. Síðan hef­ur her­for­ingja­stjórn­in orðið fyr­ir ít­rekuðum árás­um af hendi fjölda skæru­liðahópa sem berj­ast gegn vald­arán­inu og vopnuðum hóp­um þjóðern­isminni­hluta.

Her­inn hafði lofað vopna­hléi út maí „til að halda áfram end­urupp­bygg­ing­ar- og end­ur­hæf­ing­ar­ferl­inu“ eft­ir 7,7 stiga jarðskjálft­ann sem varð 28. mars en loft­árás­in geng­ur gegn því lof­orði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert