Hamas lætur bandarískan gísl lausan

Edan Alexander hefur verið í haldi Hamas síðan í október …
Edan Alexander hefur verið í haldi Hamas síðan í október 2023. AFP/Menahem Kahana

Edan Al­ex­and­er var lát­inn laus úr haldi Ham­as í dag. Hann er fædd­ur í Ísra­el en ólst upp í Banda­ríkj­un­um. Al­ex­and­er hef­ur verið í haldi Ham­as síðan í októ­ber 2023. Hann er tal­inn vera síðasti banda­ríski gísl Ham­as sem er á lífi.

Ísra­els­her hef­ur staðfest að Al­ex­and­er hafi verið af­hent­ur Rauða kross­in­um. Til að byrja með verður hann flutt­ur til sér­stakr­ar hernaðarein­ing­ar Ísra­els. Al­ex­and­er verður þaðan flutt­ur til Re'im-her­stöðvar­inn­ar í Ísra­el þar sem hann mun fá lækn­isþjón­ustu og sál­fræðiþjón­ustu áður en hann sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni. Al­ex­and­er og fjöl­skylda hans verða síðan flutt sam­an til Tel Avív. 

Fjöldi fólks hef­ur komið sam­an á torg­um Tel Avív til að fylgj­ast með lausn Al­ex­and­er. 

Fjöldi fólks hefur safnast saman á torgum Tel Avív til …
Fjöldi fólks hef­ur safn­ast sam­an á torg­um Tel Avív til að fylgj­ast með lausn Edan Al­ex­and­er. AFP/​Mena­hem Kah­ana

Þjónaði sem hermaður við landa­mæri Gaza

Hinn 21 árs gamli Edan Al­ex­and­er er fædd­ur í Tel Avív og ólst upp í New Jers­ey í Banda­ríkj­un­um.

Hann þjónaði sem hermaður í úr­vals­sveit við landa­mæri Gaza þegar Ham­as tók hann í gísl­ingu þann 7. októ­ber 2023.

Af þeim 251 ein­stak­ling­um sem hafa verið í haldi Ham­as frá 7. októ­ber eru 59 enn á Gaza. Talið er að 24 þeirra séu á lífi, að sögn BBC.

Leiðir lausn Edan Al­ex­and­er til vopna­hlés?

Vanga­velt­ur hafa verið uppi um hvort lausn Al­ex­and­ers gæti rutt braut­ina fyr­ir vopna­hlé milli Ísra­els og Ham­as.

Ham­as sagði að Al­ex­and­er yrði sleppt „sem hluti af viðleitni til vopna­hlés.“ 

Þessu hafn­ar þó ísra­elski lög­reglu­málaráðherr­ann, Ben Gvir. Hann sagði í dag að stríðið gegn Ham­as verði að halda áfram og að áfram skuli hindra alla neyðaraðstoð til Gaza-svæðis­ins. Ísra­el hef­ur hindrað alla neyðaraðstoð sín­an í mars.

Í morg­un sagði ísra­elski for­sæt­is­ráðherr­ann, Benjam­in Net­anya­hu, að lausn Al­ex­and­er væri ekki hluti af vopna­hlés­samn­ingi og að ísra­elsk­ar her­sveit­ir myndu standa við áætl­un hers­ins um nýja sókn á Gaza.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert