Norska ríkið verður stærsti hluthafinn í þarlenda flugfélaginu Norwegian með kaupum sínum á 6,4 prósenta hlut í lággjaldaflugfélaginu sem hinn umdeildi Bjørn Kjos stjórnaði lengi vel sem forstjóri og vakti mikinn úlfaþyt er norska ríkisútvarpið NRK fletti ofan af því að taílenskar áhafnir fengu greidd taílensk laun fyrir störf sín fyrir flugfélagið í Evrópu.
Forsaga þessara kaupa norska ríkisins er að flugfélagið stóð höllum fæti í heimsfaraldrinum og þáði neyðarlán frá ríkinu til að komast gegnum öldudalinn. Var þar um sveigjanlegt lán að ræða og umsamið að lánsupphæðina væri mögulegt að gera upp sem hlutabréf á föstu verði.
„Þetta er afleiðing þess að í heimsfaraldrinum björguðum við Norwegian þegar samfélagið kom til bjargar,“ segir Cecilie Myrseth viðskiptaráðherra í samtali við norska ríkisútvarpið NRK, en að mati Petter Nystrøm, greiningaraðila hlutabréfamarkaðarins hjá ABG Sundal Collier, var lán norska ríkisins algjörlega afgerandi fyrir flugfélagið á þessum tímapunkti, þegar skórinn kreppti hjá ferðaþjónustuaðilum um gervalla heimsbyggðina vegna kórónuveirunnar.
Um það samdist milli ríkisins og lággjaldaflugfélagsins norska, sem barðist í bökkum, að í stað þess að greiða lánsupphæðina til baka hlyti ríkið eignarhlut í flugfélaginu og segir viðskiptaráðherra aðspurð að norska ríkið hyggi ekki á flugrekstur, fyrir því hafi aðeins vakað að bjarga mikilvægum vinnustöðum í faraldrinum.
Ríkið hefur hins vegar grætt töluvert á láninu sem síðar varð að eignarhluta, segir Nystrøm greinandi og bendir á að ríkið hafi hagnast um 250 milljónir króna, jafnvirði 3,1 milljarðs íslenskra króna, við verðhækkun hlutabréfanna er það fékk í sinn hlut fyrir lánið. Nú þurfi ríkið aðeins að ákveða hvort það ætli sér að vera framtíðareigandi að Norwegian eður ei.
Telur hann líklegt að ríkið muni fara sömu leið og aðrir hluthafar og vonast eftir se mestri hækkun bréfa félagsins er fram líða stundir.
Að sögn Hans-Jørgen Wibstad fjármálastjóra Norwegian var það félagið sjálft sem falaðist eftir þessari lausn. „Við erum mjög ánægð með þessi viðskipti, þau koma sér mjög vel fyrir Norwegian. Eins hefur samstarfið við ríkið glatt okkur um langt skeið,“ segir Wibstad.