Í fyrsta ávarpi sínu til fjölmiðlafólks frá Vatíkaninu kallaði Leó páfi eftir lausn fangelsaðra blaðamanna. Hann sagði tjáningarfrelsi vera dýrmæta gjöf sem fjölmiðlafólki bæri skylda að vernda.
Lýsti Leó yfir samstöðu með blaðamönnum sem voru fangelsaðir fyrir að sinna störfum sínum. Nefnd um vernd blaðamanna gaf nýlega út að árið 2024 voru 361 blaðamaður í fangelsi.
Leó var valinn nýr leiðtogi kaþólsku kirkjunnar á fimmtudag í síðustu viku. Hann verður formlega vígður í messu á Péturstorgi á sunnudaginn.
Í ávarpi sínu lagði hann einnig áherslu á að blaðamenn ættu að vekja athygli á óréttlæti og fátækt í heiminum. Hvatti hann fjölmiðla til að einbeita sér að því að greina frá sannleikanum og gefa „öfgum og hatri“ ekki rými.
Páfinn gerði gervigreind einnig að umtalsefni í ræðu sinni þar sem hann lýsti yfir áhyggjum af notkun hennar. Hvatti hann fjölmiðlafólk til að nota gervigreind með ábyrgð og nota dómgreind sína þegar það kemur að notkun hennar.
Páfinn hóf ræðu sína á brandara um það mikla lófaklapp sem hann fékk þegar hann steig fram.
„Takk fyrir þessar frábæru móttökur. Þeir segja að þegar fólk klappar í byrjun skipti það ekki miklu máli. Ef þið eruð enn vakandi í lokin og viljið enn klappa þakka ég ykkur kærlega,“ sagði Leó og uppskar mikinn hlátur meðal viðstaddra.