Rússnesk yfirvöld segja nýjan úrskurð Alþjóðaflugmálastofnunarinnar hlutdrægan og hafna alfarið niðurstöðum hans.
Alþjóðaflugmálastofnunin komst í gær að þeirri niðurstöðu að Rússar bæru ábyrgð á því að farþegaflugvél Malaysia Airlines hafi verið skotin niður yfir austurhluta Úkraínu árið 2014 en allir 298 farþegar og áhafnarmeðlimir flugvélarinnar létu lífið í kjölfar þess að hún var skotin niður.
Flugvél Malaysia Airlines var á leið frá Amsterdam til Kúala Lúmpúr þegar hún var skotin niður af rússnesku flugskeyti. Rússar hafa þó alltaf staðfastlega neitað að þeir beri ábyrgð á því að flugvélin var skotin niður.
Alþjóðaflugmálastofnunin telur hins vegar að Rússar hafi brugðist skuldbindingum sínum samkvæmt alþjóðlegum flugrétti með því að hafa ekki forðast það að beita vopnum gegn almennum loftförum.
„Rússum var ekki boðið að taka þátt í rannsókn málsins og þar af leiðandi er niðurstaðan lituð af hlutdrægni, við getum ekki samþykkt niðurstöðuna,“ segir Dimitrí Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda.