Breska lögreglan handtók 21 árs gamlan mann snemma í morgun vegna gruns um tvær íkveikjur tengdar Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands.
Lögreglulið Lundúnaborgar segir að maðurinn hafi verið handtekinn „vegna gruns um íkveikju með þeim ásetningi að stofna lífi í hættu“.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir á vettvang vegna elds við fyrrum fjölskylduheimili Starmers í norðurhluta Lundúna að nóttu til á mánudag en forsætisráðherrann bjó þar áður en flokkur hans, Verkamannaflokkurinn, sigraði þingkosningar í lok júlí.
Forsætisráðherrann, sem hefur búið í ráðherrabústaðnum að Downingstræti síðan, á húsið enn og leigir það út.
„Lögreglumenn komu á vettvang. Skemmdir urðu á inngangi eignarinnar en enginn slasaðist,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.
Lögreglan hefur tengt atvikið við annan eldsvoða sem varð á sunnudag í annarri eign í Norður-Lundúnum en breskir fjölmiðlar hafa einnig tengt þá byggingu við Starmer. Í því tilfelli þurfti að bjarga einum úr lífsháska.
Lögreglan rannsakar einnig bílbruna 8. maí sem hluta af rannsókn sinni.
„Allir þrír eldsvoðarnir eru taldir grunsamlegir að svo stöddu og rannsókn stendur enn yfir,“ segir lögreglan í yfirlýsingu.