Jarðskjálftahrina vekur ótta íbúa

Eldfjallið Vesúvíus er við borgina Napólí.
Eldfjallið Vesúvíus er við borgina Napólí. Ljósmynd/Wikipedia.org

Jarðskjálfti að stærð 4,4 reið yfir í ná­grenni við borg­ina Napólí á Ítal­íu fyrr í dag. Skjálft­inn er hluti af stærri hrinu sem hef­ur valdið áhyggj­um íbúa sem ótt­ast mögu­lega eld­virkni á svæðinu.

Skjálft­inn átti sér stað á Campi Fle­grei-svæðinu á Suður-Ítal­íu klukk­an 12.07 að staðar­tíma á þriggja kíló­metra dýpi. Á und­an hon­um komu tveir skjálft­ar að stærð 2,1 og 15 mín­út­um síðar fylgdi ann­ar að stærð 3,5.

„Stór jarðskjálfta­hrina stend­ur yfir,“ skrifaði Gigi Manzoni, borg­ar­stjóri Pozzu­oli sem er í ná­grenni við Napólí, á sam­fé­lags­miðlum.

Hann sagði að þetta hefði „óhjá­kvæmi­lega hrætt íbúa“ en hvatti alla til að halda ró sinni og halda sig á opn­um svæðum.

Fylgj­ast með ástand­inu

Neðanj­arðarlesta- og kláfa­kerfi Napólí­borg­ar hef­ur verið stöðvað í varúðarskyni en eng­ar til­kynn­ing­ar um tjón eða meiðsl vegna skjálft­ans hafa borist viðbragðsaðilum.

Jarðskjálfta­virkni er ekki ný af nál­inni á þessu svæði, sem er stærsti virki sig­ketill í Evr­ópu en skjálfta­hrin­an hef­ur vakið ugg meðal íbúa.

„Við höld­um áfram að fylgj­ast með ástand­inu mín­útu fyr­ir mín­útu, en við verðum að forðast óþarfa upp­nám – gögn­in benda ekki til þró­un­ar til að hafa áhyggj­ur af,“ sagði Mauro Di Vito, for­stjóri Jarðeðlis­fræði- og eld­fjalla­fræðistofn­un­ar Ítal­íu, við frétta­stof­una AGI fyrr í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert