Karl Bretakonungur hýsir Macron í opinberri heimsókn

Windsor-kastalinn þar sem forsetahjón Frakklands munu gista.
Windsor-kastalinn þar sem forsetahjón Frakklands munu gista. AFP

Staðfest er að Karl III Breta­kon­ung­ur muni hýsa franska for­set­ann Emm­anu­el Macron í op­in­berri heim­sókn hans til Bret­lands. Macron og eig­in­kona hans Brigitte munu gista í Windsor-kast­al­an­um rétt fyr­ir utan London. 

Heim­sókn­in, sem mun eiga sér stað dag­ana 8.-10.júlí er skref þjóðanna í átt að sterk­ari tengsl­um í kjöl­far Brex­it. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu franska for­seta­embætt­is­ins og bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unn­ar. 

Mik­il­væg heim­sókn fyr­ir sam­band þjóðanna

„Þessi heim­sókn mun sýna fram á dýpt þeirra tengsla sem sam­eina lönd­in okk­ar og þjóðirn­ar tvær,“ sögðu emb­ætt­is­menn franska for­set­ans.

Karl III Breta­kon­ung­ur heim­sótti Frakk­land árið 2023 og hlaut sú heim­sókn mikla at­hygli á heimsvísu fyr­ir að vera ár­ang­urs­rík í bætt­um sam­skipt­um þjóðanna. Í þeirri heim­sókn flutti Karl franska þing­inu ávarp og sótti veislu Macrons í Versala­höll­inni. 

Mik­il póli­tísk spenna eft­ir Brex­it

Mik­il póli­tísk spenna var á milli Lund­úna og Par­ís­ar í kjöl­far Brex­it sem fyrri hægris­innaða íhalds­stjórn Bret­lands stóð fyr­ir, en nú und­ir mið-vinstri verka­manna­flokks­stjórn Star­mers virðast tengsl­in vera að styrkj­ast á ný. 

Mik­il­vægi sam­bands­ins á milli Frakk­lands og Bret­lands kom í ljós um síðustu helgi þegar Star­mer og Macron ásamt Friedrich Merz, ný­kjörn­um kansl­ara Þýska­lands, ferðuðust með lest til Kænug­arðs til viðræðna við Volódimír Selenskí. Sam­an leiða Star­mer og Macron evr­ópsk átök til friðar í Úkraínu og var þessi heim­sókn hluti af því. 

17 ár frá síðustu heim­sókn 

Liðin eru 17 ár síðan fransk­ur leiðtogi kom síðast í op­in­bera heim­sókn til Bret­lands. Þá hýsti Elísa­bet drottn­ing heit­in fyrr­um for­seta frakka, Nicolas Sar­kozy, og eig­in­konu hans Cörlu Bruni-Sar­kozy. .

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert