Maðurinn sem var handtekinn í gær í Svíþjóð grunaður um njósnir er hátt settur diplómati þar í landi. Frá þessu greinir SVT, sænska ríkisútvarpið. Sænski diplómatinn hefur sinnt störfum í þágu sænska ríkisins víðs vegar um heiminn.
Talsmaður sænsku leyniþjónustunnar Sapo, Johann Wikstrom, sagði leyniþjónustuna hafa handtekið manninn í Stokkhólmi grunaðan um að hafa stundað njósnir frá fyrsta til ellefta maí.
Enn er margt á huldu í málinu en sænsk stjórnvöld hafa ekki veitt frekari upplýsingar.
Njósnir hafa færst í aukana undanfarin ár í Svíþjóð. Árið 2023 var fyrrum starfsmaður sænsku leyniþjónustunnar dæmdur fyrir njósnir í þágu Rússlands. Hann hlaut lífstíðarfangelsi.
Rússnesk stjórnvöld eru meðal þeirra sem Svía grunar helst um að stunda njósnir sem beinast gegn Norðurlandaþjóðunum. Auk Rússa eru Kínverjar og Íranar á listanum.