Sat saklaus í fangelsi í 38 ár

Sat saklaus í fangelsi í 38 ár.
Sat saklaus í fangelsi í 38 ár. AFP

Bresk­ur maður, sem sat í fang­elsi í 38 ár fyr­ir morð á barþjóni árið 1986, hef­ur verið sýknaður af bresk­um dóm­stól­um eft­ir að ný DNA-sönn­un­ar­gögn komu í ljós.

Peter Sulli­v­an, 68 ára Breti, er tal­inn vera sá sem hef­ur setið lengst í fang­elsi í Bretlandi vegna rangr­ar sak­fell­ing­ar. Þrír dóm­ar­ar dæmdu refsi­dóm hans ógild­an í dag.

Sulli­v­an var hand­tek­inn eft­ir að Dia­ne Sidwell, 21 árs göm­ul kona, fannst lát­in í bæn­um Bebingt­on á Norðvest­ur-Englandi í ág­úst 1986.

Meyr fyr­ir rétt­in­um

 

Sulli­v­an var sak­felld­ur árið 1987 og til­raun­ir hans í gegn­um árin til að fá málið end­urupp­tekið gengu brös­ug­lega.

Í dag sögðu lög­fræðing­ar hans að DNA-sýni sem fund­ust á lík­ama Sidwells staðfestu að Sulli­v­an væri ekki morðing­inn eins og talið var.

Sulli­v­an var meyr þegar dóm­ar­ar ógiltu dóm hans í dag og sagði í yf­ir­lýs­ingu að þótt sak­fell­ing hans hefði verið röng væri hann ekki reiður eða bit­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert