Dæmdur til dauða vegna spillingarglæpa

Dómstóll í norðausturhluta Kína dæmdi manninn sekan.
Dómstóll í norðausturhluta Kína dæmdi manninn sekan. AFP

Zhao Weiguo, fyrr­ver­andi stjórn­ar­formaður Ts­ing­hua Uni­group, stórs kín­versks rík­is­rek­ins fram­leiðanda íhluta fyr­ir ör­gjörva, var í dag dæmd­ur til dauða vegna stór­fellds fjár­drátt­ar og ólög­mætr­ar gróðastarf­semi. Þá var hann einnig dæmd­ur fyr­ir að hafa vís­vit­andi skaðað hags­muni fyr­ir­tæk­is sem skráð er á markað.

Dómn­um var þó frestað til tveggja ára en dauðadóm­ar vegna spill­ing­arglæpa í Kína eru oft lækkaðir niður í lífstíðarfang­elsi ef þeim er áfrýjað.

Zhao var einnig gert að greiða 12 millj­ón­ir jú­ana í sekt, sem jafn­gilda um 1,65 millj­ón­um banda­ríkja­dala eða rúm­um 216 millj­ón­um ís­lenskra króna, og að af­sala sér öll­um per­sónu­leg­um eig­um. Þá var hann svipt­ur öll­um póli­tísk­um rétt­ind­um ævi­langt.

Zhao var stjórn­ar­formaður Ts­ing­hua Uni­group frá 2009 til 2022 þegar rann­sókn á máli hans hófst en ári síðar var hann form­lega sakaður um spill­ingu.

Nýttu yf­ir­burðastöðu sína

Dóm­stóll­inn komst að því að Zhao og vitorðsmaður hans hefðu mis­notað aðstöðu Weguo til að kaupa fast­eign­ir á lægra verði, sem hefðu átt að vera í eigu fyr­ir­tæk­is­ins, og þannig tekið til sín rík­is­eign­ir að virði 470 millj­ón jú­ana sem jafn­gilda um 65 millj­ón banda­ríkja­döl­um eða um 8,8 millj­örðum ís­lenskra króna.

Einnig hafi hann valdið kín­verska alþýðulýðveld­inu tjóni upp á yfir 890 millj­ón­ir jú­ana með því að kaupa þjón­ustu af vitorðsmanni sín­um á mun hærra verði en markaðsvirði. Jafn­gild­ir tjón kín­verska rík­is­ins um 123 millj­ón­um banda­ríkja­dala eða rúm­um 16 millj­örðum ís­lenskra króna.

Frá því að Xi Jin­ping, for­seti Kína komst til valda fyr­ir rúm­um ára­tug hef­ur hann staðið í her­ferð gegn spill­ingu emb­ætt­is­manna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert