Færri látast úr ofskömmtun

Rúmlega helmingur þeirra sem látast sökum ofskömmtunar fíkniefna í Bandaríkjunum …
Rúmlega helmingur þeirra sem látast sökum ofskömmtunar fíkniefna í Bandaríkjunum látast af völdum ofskömmtunar fentanýls. AFP

Tölu­vert færri lét­ust sök­um ofskömmt­un­ar fíkni­efna í Banda­ríkj­un­um í fyrra held­ur en árið 2023.

80.391 manns lét­ust sök­um ofskömmt­un­ar á sein­asta ári en rúm­lega helm­ing­ur þeirra tók of stór­an skammt af fenta­nýl. Árið 2023 voru hins veg­ar 110.035 sem lét­ust af völd­um ofskömmt­un­ar. Bar­átta Banda­ríkja­manna við ópíóíðafar­ald­ur­inn virðist því vera að skila ár­angri.

Rík­is­stjórn Joe Biden, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta, lagði mikla áherslu á að ná ár­angri í bar­átt­unni. Hann efldi meðferðarúr­ræði og gerði skaðam­innk­andi nefúðann Naloxo­ne aðgengi­legri.

Á síðustu 20 árum hef­ur rúm­lega millj­ón manns lát­ist af völd­um ópíóíða í Banda­ríkj­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert