Starfsfólk almannavarna á Gasa segja að minnst 80 manns hafi látist í sprengjuárásum ísraelska hersins á svæðinu í dag. Loftárásirnar áttu sér stað á meðan fundur Benjamín Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, og Steve Witkoffs, sendiherra Bandaríkjanna, um lausn ísraelskra gísla stóð yfir.
Samningaviðræður um lausn gíslanna sem eru í haldi Hamas á Gasa hafa staðið yfir síðustu daga og var fundað um málið í Doha, höfuðborg Katar, í dag en Donald Trump Bandaríkjaforseti tók þátt í fundarhöldunum.
Skrifstofa Netanjahús gaf út að forsætisráðherrann hefði rætt við Witkoff og samninganefnd hans um „málefni gíslanna og hinna týndu“.
Witkoff sagði síðar að Trump hefði átt „virkilega árangursríkt samtal“ við emírinn af Katar um samkomulag varðandi Gasa og bætti við: „Við erum á réttri leið og við höfum gert góða áætlun saman“.
Á meðan þessu öllu stóð geisuðu bardagar á Gasa en Mohammed al-Mughayyir sem starfar fyrir almannavarnir á svæðinu sagði fréttastofu AFP að að minnsta kosti 80 manns hefðu látist í sprengjuárásum Ísraela síðan í dögun, þar af 59 í norðurhluta Gasa.
Myndefni frá norðanverðu Gasa frá því fyrr í dag sýnir rústir bygginga og Palestínumenn, þar á meðal ung börn, leitandi að eigum sínum meðal þeirra.
Þá sjást grátandi syrgjendur krjúpandi við hlið líka sem eru vafin blóðugum hvítum líkklæðum.
Hasan Moqbel, Palestínumaður sem missti ættingja í sprengjuárásum dagsins, sagði í samtali við AFP: „Það eru engin hús sem hægt er að búa í. Ég hef ekkert skjól, enga fæðu, ekkert vatn. Þeir sem deyja ekki í loftárásum deyja úr hungri, og þeir sem deyja ekki úr hungri deyja vegna skorts á lyfjum.“
Fyrr í dag hvatti ísraelski herinn íbúa á hluta Gasa til að yfirgefa svæðið og varaði við því að hersveitir myndu „ráðast á svæðið af miklu afli“.