Skjálfti að stærðinni 6 við eyjuna Kasos

Gíska eyjan Kasos.
Gíska eyjan Kasos. Ljósmynd/Wikipedia.org

Sterk­ur jarðskjálfti, sem mæld­ist 6,0 stig, reið yfir suður af grísku eyj­unni Kasos í gær­kvöldi, að sögn jarðfræðistofn­un­ar Banda­ríkj­anna.  Eng­ar fregn­ir hafa borist af slys­um á fólki né skemmd­um á mann­virkj­um.

Jarðskjálft­inn varð á 74 kíló­metra dýpi um 23 kíló­metra frá Fry, höfuðborg eyj­unn­ar. Hann fannst víða og þar á meðal í Kaíró í Egyptalandi og að sögn rann­sókn­ar­stofn­unn­ar Egypta­lands í stjörnu- og jarðeðlis­fræði urðu ekki nein­ar skemmd­ir né eft­ir­skjálft­ar.

Sterk­ur skjálfti reið yfir aust­ur­strönd Tonga

Þá reið jarðskjálfti af stærðinni 6,4 yfir aust­ur­strönd Tonga í Kyrra­haf­inu í nótt að sögn Jarðfræðistofn­un­ar Banda­ríkj­anna.

Skjálft­inn varð á 243 kíló­metra dýpi um 137 frá bæn­um Neiafu. Jarðskjálft­ar eru al­geng­ir í Tonga, lág­lend­um eyja­klasa þar sem um 100.000 manns búa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert