Ákærður fyrir að stela frá utanríkisráðherra

David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands.
David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands. AFP

Fransk­ur bíl­stjóri hef­ur verið ákærður grunaður um að hafa stolið tösku og reiðufé frá Dav­id Lammy, ut­an­rík­is­ráðherra Bret­lands.

Bíl­stjór­inn keyrði ut­an­rík­is­ráðherr­ann hundruð kíló­metra frá Ítal­íu alla leið á skíðasvæði í Frakklandi. Eft­ir bíl­ferðina til­kynntu bíl­stjór­inn og ut­an­rík­is­ráðherr­ann hvorn ann­an til lög­reglu.

Ásak­an­ir um of­beldi á báða bóga

Bíl­stjór­inn vill meina að ut­an­rík­is­ráðherr­ann hafi ekki greitt far­gjaldið sem hljóðaði upp á 1.550 evr­ur en hann hef­ur einnig borið fyr­ir sig að hann hafi verið beitt­ur of­beldi af hönd­um ráðherr­ans.

Ráðherr­ann vill hins veg­ar meina að greitt hafi verið fyr­ir ferðina að fullu en bíl­stjór­inn hafi svo síðar farið fram á hærra far­gjald en samið hafi verið um. Hann hef­ur einnig haldið því fram að bíl­stjór­inn hafi ógnað sér og eig­in­konu sinni með hníf.

Ákær­an á hend­ur bíl­stjór­an­um hljóðar þannig að hann hafi ekið á brott með tösk­ur ráðherr­ans og stolið úr þeim reiðufé sem hann taldi sig eiga inni. Hann skilaði svo tösk­un­um á lög­reglu­stöð um sól­ar­hring síðar.

Sak­sókn­ari í mál­inu vill meina að um þjófnað hafi verið að ræða sök­um þess hve lengi bíl­stjór­inn var með tösk­urn­ar í sín­um vörsl­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert