Ekkert lát á loftárásum Ísraela á Gasa

Yfir 100 manns, þar af mörg börn, hafa látið í …
Yfir 100 manns, þar af mörg börn, hafa látið í loftárárásum Ísraelsmanna á Gasa síðustu tvo sólarhringa. AFP

Loft­árás­ir Ísra­ela á Gasa í nótt kostuðu að minnsta kosti 50 manns lífið að sögn starfs­fólks al­manna­varna á Gasa.

Í gær lét­ust 80 í sprengju­árás­um Ísra­ela en ísra­elski her­inn hvatti í gær íbúa á hluta Gasa að yf­ir­gefa svæðið og varaði við því að her­sveit­ir myndu ráðast á svæðið af miklu afli.

Talsmaður al­manna­varna, Mahmud Bassal, sagði í sam­tali við AFP að minnsta kosti 13 manns hafi verið bjargað úr rúst­um eft­ir árás í morg­un í borg­inni Khan Yun­is á suður­hluta Gaza, en 20 til viðbót­ar hafi  lífið í fimm aðskild­um árás­um víðsveg­ar um Gasa-svæðið.

Rústir bygginga í borginni Jabalia, á norðurhluta Gasa.
Rúst­ir bygg­inga í borg­inni Jabalia, á norður­hluta Gasa. AFP

Í gær vörpuðu ísra­elsk­ar orr­ustuþotur sex sprengj­um sam­tím­is á evr­ópska sjúkra­húsið í Khan Youn­is með þeim af­leiðing­um að 28 manns létu lífið og tug­ir særðust, að sögn al­manna­varn­ar­stofn­un­ar Ham­as.

Ísra­elski her­inn sagði að hann hefði gert „ná­kvæma árás“ á „hryðju­verka­menn Ham­as í stjórn- og stjórn­stöð sem hann full­yrti að væri und­ir sjúkra­hús­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert